Sunday, July 5, 2009

Allt og ekkert

Nú er loksins farið að kólna og heilasellurnar farnar að starfa nokkuð eðlilega og framkvæmdasemin farin að ná ásættanlegu marki, eða svona nánast eðlilegu!!! Ekki að ég sé að kvarta yfir hitabilgjunni sem heiðraði okkur með nærveru sinni, síður en svo! Það er bara einhvernveginn þannig að þegar veðrið er gott þá gerir maður ekki mikið annað en að njóta þess, allt annað bíður kulda og rigningatíma, sem er aldrei mjög langt undan þegar maður býr á norðurhvelinu.
Undanfarnir dagar eru búnir að vera tær snilld og svitastorknir og klístraðir kroppar hafa notið sín við útiveru, sundferðum og hjólatúrum, milli þess sem unnið er. Myndavélin hefur að einhverjum óskiljanlegum ástæðum ekki fengið að fljóta með í því sem við höfum haft fyrir stafni yfir þetta hitabeltistímabil en hér sjáiði samt nokkrar útvaldar myndir af Sólargeislanum sískínandi, sem voru teknar fyrir og eftir "värmeböljan".

"Ér að elda"
Okkur barst óvænt aðstoð í eldhúsið einn daginn! "The naked cheaf" mætti á svæðið og sauð saman ævintýralega samsettan mat. Ég vek athygli ykkar á kokkahúfu matreiðslumannsins...hann klikkar ekki á smáatriðunum og setur hreinlætið ofar öllu ;)
Til nánari útskýringar, þá er kokkahúfan langt frá því að vera höfuðfat, heldur er þetta uppáhalds nærbrók heimasætunnar!!!

Þrjóskublóð
Þær eru saman í þessu, Hekla og Múmín stelpan!!
Það að sofna á gólfinu (oftast eftir þó nokkuð þref og þars og nokkrar klósettferðir og vatnsdrykkju) hefur orðið einhverskonar trend hjá þeirri stuttu! Og nú hefur hún fengið Múmínstelpuna til liðs við sig.
Tvær saman stöndum við....
DIF dress
Alsvenskan hófst í gær eftir langa pásu og DIF spilaði á Stadion í dag! Að því tilefni var ákveðið að splæsa í dress á dömuna, sem var laaaaangþráð.
DIF dressið varð til þess að strákarnir unnu leikinn og byrjuðu nýtt tímabil með stæl!
Þetta er semsagt happadresss.

Hekla var samt eitthvað að misskilja þetta alltsaman og fór að dansa ballett af miklum móð á áhorfendapöllunum!!!
Spurning um að pabbi fari í að útskýra fyrir henni muninn á fótbolta og ballett!!

Tuesday, June 30, 2009

Og allir verða að borða


Eftir sund verður maður ad borða og hvað er þá betra en rótsterkur indverskur matur.
Vindaloo a diskinn minn!

Nú er það heitt maður!!!


Við erum að tala um steikjandi hita í Stokkhólmi, yfir 30°C og lýsið bráðnar sem aldrei fyrr.

Til að reyna að koma í veg fyrir ofhitnun höfum við dvalið langdvölum í kaldri sundlauginni og ætlum að halda uppteknum hætti eftir vinnu í dag.

Ekkert annað að gera en að halda coolinu

Wednesday, June 24, 2009

Í garðinum heima


Þessi litli sæti hnoðri hefur hreiðrað um sig undir einum runanna í garðinum okkar. Fyrst sáum við hann fyrir nokkrum vikum síðan undir tréi utan við garðinn en í dag sótti hann okkur Heklu heim. Það fór ekki mikið fyrir honum og hann kippti sér ekkert upp við myndatöku og alla þá athygli sem honum var veitt. 
Ætli broddgaltakjöt sé gott á grillið??

Sunday, June 21, 2009

Midsommar

Nú er Midsommar helgin senn á enda, þurrari en bjartsýnustu menn þorðu að vona. Við gáfum skít í blauta veðurspá og "firuðum" midsommar ásamt góðum vinum. Að sjálfsögðu tókum við þátt í hefðbundinni dagskrá og dönsuðum kringum þessa líka fínu Midsommarstöng og sungum tilheyrandi söngva. Síðan söfnuðumst við saman heima í garðinum góða og grilluðum,  átum á okkur gat og höfðum gaman án þess að rigning setti strik í reikninginn. Það glitti meira að segja í þá gulu af og til og veðrið var á köflum eins og best verður á kosið. 
 
Partýljónin; Ella, Hekla, Lilja Marín, Sindri Dagur og Björgvin

"Namnsdag"
Ég átti svo namnsdag í gær, þ.e. allar Lindur í Svíþjóð gátu haldið upp á daginn!!! 
Gaman að því nema hvað ég gerði ekkert í tilefni dagsins nema taka góða æfingu með hinum fjölskyldumeðlimunum og baka skonsur í hádeginu!

Flugnabit
Ekki nóg með að Hekla hlypi hlutfallslega mest og hraðast af okkur þrem, þá hjólaði hún eins og herforingi seinnipart dags og fékk meira að segja að prufa nýja fína tvíhjólið hans Hugo nágrana og jafnaldra. 
Hjólagleðin snérist svo yfir í andstæðu sína þegar Hekla allt í einu argaði upp yfir sig og greip um innanvert lærið á sér. Móðurinni og sjúkraþjálfaranum kom ekkert annað í hug en að barnið væri komið með krampa í lærið og reyndi að láta hana spyrna fætinum í!!! Það dugði hvergi og á endanum (nokkrum sek. síðar) var Sólin drifin úr buxunum til að gá hvað væri á seiði. Það leyndi sér ekki, tvær stungur á innan verður lærinu. Seinna fundust svo tvær dauðar, heldur óásjálegar flugur, önnur úti á "slysstað" og hin inni á baðherbergi. 
Óskemmtileg upplifun fyrir tveggja og hálfs árs gamla snót....sem stóð sig þrátt fyrir allt vel og bar sig mannalega eftir á.

Sunday, June 14, 2009

Úrhelli í skiptum fyrir sól og sumar

Ferðin okkar til Krítar var tær snilld og alveg óhætt að mæla með Krít sem ferðamannastað! Það munaði minstu að við hrökkluðumst til baka inn í flugvélina þegar rokið og rigningin tók á móti okkur á Arlanda. Nú sjáum við  mikið eftir því að hafa ekki látið verða að því, þar sem himininn hefur grátið tröllatárum nánast stanslaust síðan við stigum fótum á sænska grund og í nótt var varla svefnfriður fyrir beljandi rigningunni.

Við skulum bara hverfa í huganum til Krítar, í sólina og hitann...





Þessar myndir verma, það er ekki spurning !!! 
Hér eru svo c.a. 200 myndir til viðbótar fyrir þá sem vilja láta sér líða sérstaklega vel ;)

Thursday, June 4, 2009

Næst á dagskrá

Vakna kl 3.20 í nótt og taka taxa út á Arlanda flugvöll kl 4.00.

Flug til Krítar/ Chania kl 5.55.

Lending um kl 10 að staðartíma.

Taxi á Hótel Almyrida-Beach um kl 11.

Bíst svo fastlega við því að við munum taka hópdífu í hótel lauginni upp úr hádegi, Hekla í nýja Hello Kitty sundbolnum og við gamlasettið í einhverju minna spennandi ;)

Svo verðum við sjálfsagt komin á kaf í fetaostinn og ólífurnar áður en varir.